Þorbjörg Hallgrímsdóttir

ID: 11675
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1945

Þorbjörg Hallgrímsdóttir Mynd Almanak

Þorbjörg Hallgrímsdóttir fæddist 2. september, 1871 í N. Múlasýslu. Dáin 1. janúar, 1845 í Vatnabyggð..

Maki: Tímóteus Guðmundsson f. 15. júní, 1867 í Dalasýslu, d. 22. nóvember, 1946 í Vatnabyggð.

Börn: 1. Anna Guðrún f. 6. febrúar, 1894 2. Elísabet Kristjana f. 15. september, 1895, d. 17. janúar, 1953 3. Ólína Guðríður f. 7. janúar, 1897 4. Hallfríður Anna f. 20. september, 1898 5. Magnús Guðmundur f. 11. apríl, 1900 6. Jónína Katrín f. 30. janúar, 1902 í Brownbyggð í Manitoba 7. Jón Brandur f. 7. desember, 1904 í Brownbyggð 8. Sigríður Oddný f. 31. janúar, 1910 í Elfros, Saskatchewan 9. Lára Jakobína f. 8. júní, 1912 í Elfros 10. Edwin Theodór f. 17. desember, 1914.

Þorbjörg fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 með foreldrum sínum, Hallgrími Guðmundssyni og Guðrúnu M Guðmundsdóttur og systkinum. Þau fluttu suður til N. Dakota árið 1880. Tímóteus fór einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Þaðan fór hann í Garðarbyggð í N. Dakota og bjó þar til ársins 1901. Þá flutti hann yfir landamærin og settist að í Brown byggðinni í Manitoba þar sem hann bjó til 1907 en þá flutti hann í Vatnabyggðina í Saskatchewan. Þar nam hann land nærri Elfros.