Þorbjörg Sveinsdóttir fæddist 10. desember, 1831 í N. Múlasýslu. Dáin 25. apríl, 1911.
Maki: 18. október, 1864 Þorkell Bessason f. í Fellum í N. Múlasýslu 8. júní, 1840.
Börn: 1. Sveinn f. 1870. D. 1876 2. Jón f. 1872 D. 1876 3. Kristrún f. 1873 4. Gunnlaugur f. 1875 D.1876 5. Gunnar f. 1876. Tveir synir dóu á Íslandi. Gunnars er aðeins getið í Vesturfaraskrá, óvíst um hann.
Fluttu vestur árið 1876 til Nýja Íslands og bjuggu á Gimli. Samferða þeim var Kristín Jóhannesdóttir móðir Þorkels. Þau misstu synina Svein, Jón og Gunnlaug úr bólusótt.
Þau námu land í Hnausabyggð og nefndu það Reykhóla. Fluttu til N. Dakota árið 1881 og settust að í Akrabyggð. Þar bjuggu þau í tvö ár en fluttu því næst á land suður af Cavalier þar sem þau bjuggu í 25 ár. Þorkell flutti í Vatnabyggðir í Saskatchewan árið 1908 og bjó í Wynyardbyggð.
