Þórður Árnason

ID: 12250
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Þórður Árnason Mynd Almanak 1938

Þórður Árnason fæddist 21. mars, 1873 í N. Múlasýslu.

Maki: 1902 Sigurrós Tómasdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 27. desember, 1882.

Börn: 1. Árni f. 29. nóvember, 1903 2. Tómas (Thomas) f. 25. nóvember, 1905 3. Guðrún (Gudrun) Lára Svanfríður f. 26. október, 1908 4. Þórdís (Thordis) Stefanía f. 21. september, 1911 5. Sveinn (Svein) Theodore f. 16. mars, 1914, d. 14. desember, 1918 6. Ólöf (Olive) Sigurbjörg f. 2. mars, 1916 7. Margrét (Margaret) Soffía f. 27. mars, 1919 8. Þórður (Thordur) Stefán f. 17. júní, 1923.

Þórður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889 með bróður sínum Sveini. Fékk Þórður vinnu hjá kanadískum bónda austur af borginni. Var þar í tvö ár og lærði þá ensku ágætlega og ýmsar hliðar landbúnaðar. Var eitthvað við járnbrautarvinnu en fór svo suður til N. Dakota þar sem Sveinn vann við kennslu.

Þegar foreldrar þeirra fluttu vestur 1892 fór Þórður til þeirra. Árni flutti norður í Brown byggð í Manitoba árið 1899 og þangað fór Þórður 1902 og keypti land. Hann seldi það árið 1906 og flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann nam land nálægt bænum Mozart.