Þórður Eggertsson

ID: 4504
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : Barðastrandarsýsla
Dánarár : 1928

Þórður Eggertsson Mynd Well Connected

Þórður Eggertsson fæddist 23. júní, 1871 í Barðastrandarsýslu. Dáinn 27. júní, 1928 í Portland í Oregon. Thordur eða Thomas Vatnsdal vestra.

Maki: 29. júlí, 1899 Anna Jónsdóttir f. í Nýja Íslandi 7. janúar, 1879, d. 3. nóvember, 1958

Börn: 1. John Russell f. 10. september, 1901 2. Ethel f. 3. september, 1903 3. Florence f. 1. mars, 1906 4. Gladys f. 15. október, 1908 5. Laura f. 13. september, 1910 6. Arthur f. 21. maí, 1916, d. 15. október, 1952.

Þórður flutti vestur árið 1886 með foreldrum sínum Eggerti Magnússyni og Soffíu Friðriksdóttur sem settust að í N. Dakota. Anna var dóttir Jóns Jónssonar frá Munkaþverá og Guðnýjar Eiríksdóttur. Þórður lauk kennaraprófi frá ríkisháskólanum í Grand Forks og lagði kennslu fyrir sig. Sneri sér seinna að viðskiptum. Þórður og Anna settust að í Duxby í Minnesota um aldamótin þar sem þau bjuggu til ársins 1906, fluttu þá til Wadena í Saskatchewan þar sem þau bjuggu allmörg ár. Þaðan fluttu þau vestur að Kyrrahafi árið 1917 og bjuggu í Portland í Oregon til ársins 1928. Leið Önnu lá þaðan eftir lát Þórðar til Seattle í Washington.