Þórður Þórðarson fæddist 19. september, 1831 í N. Múlasýslu. Dáinn 18. maí, 1904.
Maki: 1) Kristín Sveinsdóttir f. 1830 2) Kristín Þorsteinsdóttir f. 19. september, 1845. Dáin í Ontario. 3) Rósa Ólafsdóttir f. 17. desember, 1850, d. 20. mars, 1915.
Börn: Með Kristínu Sveinsdóttur: 1. Guðmundur f. 1854 2. Guðríður f. 1857 3. Þórður f. 1862. Með Kristínu Þorsteinsdóttur 1. Sigurbjörg f. 2. mars, 1877 2. Hjörtur f. í Ontario. Hann var skilinn eftir þar í umsjá skoskra hjóna. Með Rósu 1. Lára Sesselja.
Þórður og Kristín Þorsteinsdóttir fóru vestur til Ontario í Kanada árið 1878 og dvöldu þar nokkur ár. Hún lést þar stuttu eftir fæðingu Hjartar. Systkinin Guðmundur, Guðríður, Þórður og Sigurbjörg hálfsystir þeirra fóru með föður sínum vestur til Nýja Íslands í Manitoba. Sigurbjörg litla var tekin í fóstur af hjónunum Gesti Oddleifssyni og Þóreyju Stefánsdóttur. Þórður kvæntist Rósu og þau fluttu vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1886. Fimm árum eftir að Þórður féll frá seldi Rósa landið og flutti vestar á sléttuna og nam land við Birch Creek. Seinna flutti hún svo þaðan á land nærri Tantallon.
