
Þorgerður Jónsdóttir Mynd VÍÆ IV
Þorgerður Jónsdóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu 24. október, 1864. Dáin í hvirfilbyl 18. júní, 1927 í Vatnabyggð..
Maki: 20. október, 1890 Friðrik Guðmundsson f. í Víðidal á Hólsfjöllum í N. Þingeyjarsýslu árið 1861, d. 3. maí, 1936 við Mozart í Saskatchewan.
Börn: 1. Guðmundur f. 9. ágúst, 1891 2. Guðrún f. 12. júlí, 1893 3. Helga f. 20. janúar,1895 4. Jónas f. 3. nóvember, 1896, dó í æsku á Íslandi 5. Jakob Holt f. 1898 6. Ingólfur f. 12. apríl, 1898, d. í Flin Flon í Manitoba 10. júní, 1929 7. Jóhann f. 18. nóvember, 1899 8. Ingólfur f. 22. apríl, 1901 9. Jón f. 12. júní, 1903 10. Arnþrúður f. 1905 11. Aðalbjörg f. í Kanada 1908.
Þau fluttu vestur til Saskatchewan árið 1905 og settust að á landi nærri Mozart í Vatnabyggð. Þorgerður annaðist barnahópinn á frumbýlingsárunum í Vatnabyggð og starfaði þar líka við ljósmóðurstörf. Friðrik var frumbyggi í byggðinni og lét þar margt gott eftir sig liggja m.a. skráði hann upphafsþátt sögu Vatnabyggða sem birtur var í Almanakinu árið 1917. Lauk aldrei verkinu vegna sjóndepru og var blindur síðustu 15 ár ævinnar.
