Þórir Björnsson

ID: 5840
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1945

Þórir Björnsson fæddist 22. nóvember, 1863 í Húnavatnssýslu. Dáinn 1. janúar, 1945 í King sýslu í Washington.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Duluth í Minnesota árið 1897 og bjó þar lengi. Vann á mjólkurbúi hjá Íslendingum í nágrenni borgarinnar og seinna í slippnum.