
Þorlákur Jónasson Mynd VÍÆ II
Þorlákur Jónasson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 21. júlí, 1849. Dáinn í Winnipeg 27. janúar, 1928.
Maki: Kristrún Valgerður Pétursdóttir f. 7. júlí, 1845, d. í Saskatchewan 19. febrúar, 1921.
Börn: 1. Petrea Guðfinna f. 2. júní, 1877, d. 6. júní, 1942 í Winnipeg 2. Benedikt f. 18. október, 1879, d. 20. júní, 1953 3. Hólmfríður Jakobína f. 17. júní, 1882, d. 22. október, 1956 í Winnipeg 4. Björn f. 20. október, 1884 5. Kristján f. 6. mars, 1886, d. í Gimli 30. maí, 1960 6. Valgerður f. 12. janúar, 1888 7. Jónas f. 3. febrúar, 1890.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og námu land í Argyle byggð.
Árið 1909 fluttu þau til Dafoe í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þar rétt hjá bænum nam Þorlákur land þar sem hann bjó til ársins 1921.
Flutti þá til dætra sinna sem bjuggu í Winnipeg.
