ID: 15926
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1953
Þorlákur Pétursson fæddist í Reykjavík 27. nóvember, 1879. Dáinn í Spanish Fork 7. janúar, 1953.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann fór vestur til Utah með móður sinni, Hólmfríði Þorláksdóttur árið 1881. Hann var skírður í Mormónasöfnuði árið 1887 og bjó alla tíð í Spanish Fork.
