
Þorleifur Jóakimsson Mynd SÍND

Guðrún Jónsdóttir Mynd SÍND
Þorleifur Jóakimsson fæddist 13. september, 1847 í N. Múlasýslu. Dáinn 21. júní, 1923 í Manitoba. Jackson vestra.
Maki: 1) Anna Árnadóttir ættuð af Austurlandi, d. 1881 í Winnipeg 2) Guðrún Jónsdóttir f. 1844 í S. Múlasýslu.
Börn: Með Önnu eignaðist Þorleifur tvo drengi, dóu báðir barnungir. Með Guðrúnu: 1. Anna Sigríður 2. Ragnhildur 3. Þórstína Sigríður. Anna og Ragnheiður dóu báðar úr skarlatssótt barnungar.
Þorleifur fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 en flutti þaðan sumarið 1877. Hann nam land í Akrabyggð í N. Dakota árið 1881 fór þaðan 1903 og nam land vestur af Leslie í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann brá búi árið 1912, seldi land og skepnur og flutti til Manitoba. Þar bjó hann ýmist í Winnipeg eða Selkirk. Guðrún Jónsdóttir yfirsetukona flutti vestir árið 1881.
