
Þorleifur Jónsson og Guðný Jónsdóttir Mynd NG collection
Þorleifur Jónsson fæddist 14. október árið 1866 í Skagafjarðarsýslu.
Maki: 11. nóvember, 1899 Guðný Sigríður Jónsdóttir f. 12. september, 1876 í Eyjafjarðarsýslu.
Börn: 1. Sigurður d. 13. desember, 1923 2. Jóhannes 3. Stefán 4. Victor Aðalsteinn 5. Helga 6. Hólmfríður Anna 7. Inga Soffía 8. Nikólína.
Þau flutt vestur árið 1900 til Winnipeg í Manitoba og þaðan áfram til Mountain í N. Dakota. Þar voru þau í tvö ár en fluttu þá vestur til Sherwood sem er rétt sunnan landamæra N. Dakota og Saskatchewan. Þar nam Þorleifur land og þar bjuggu þau í 11 ár. Landið var ekki gott, þau sneru til baka og fóru nú til Crystal sem er rétt suður af Mountain. Þau voru þar í fimm ár en fluttu svo norður á bóginn í Big Point byggð vorið 1918. Þar keypti Þorleifur land og við tók mikill uppgangstími.
