ID: 12426
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1933
Þorsteinn Daníel Ríkharðsson fæddist 17. apríl, 1873 í N. Múlasýslu. Dáinn 19. nóvember, 1933 í Lyon sýslu í Minnesota. Thorsteinn Daniel Jonsson Richards eða Stone Johnson vestra.
Maki: Nellie, af erlendum uppruna, d. 1929.
Börn: 1. Donald f. 1923 2. Howard Richard f. 1. febrúar, 1924 3. Eldon Elmer f. 1924/5 4. Eunice f. 17. nóvember, 1929. Nellie átti fyrir dóttur að nafni Ethel Penkert.
Þorsteinn flutti vestu árið 1887 með foreldrum sínum, Ríkharði Jóhannssyni og Herborgu Sigurðardóttur. Þau námu land skammt frá Minneota í Minnisota. Þorsteinn var bóndi í Eidsvold hreppi í Lyon sýslu. Árið 1920 er hann skráður ókvæntur og hjá honum búa móðir hans og systur tvær, þær María og Hildur.
