Þorsteinn Eyjólfsson

ID: 14238
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Múlasýslu
Dánarár : 1914

Þorsteinn Eyjólfsson fæddist í S. Múlasýslu árið 1855. Dáinn í Lundar árið 1914.

Maki: Kristjana Jónsdóttir fæddist 18. júlí, 1856 í Dalasýslu. Eyolfson vestra.

Börn: 1. Ragnar Eyjólfur f. 1891, d. 1965 2. Jón Friðrik (John Frederick) f. 13. febrúar, 1893, d. 11. mars, 1952 3. Tómas (Thomas) f. 1895, d. 1921 4. Albert f. 1896, d. 1953 5. Kjartan f. 1898, d. 1963 6. Árni f. 1900, d. 1982 7. Björn (Barney) f. 1902, d. 1974 8. Kristófer (Christopher) f. 1904, d. 1929 9. Margrét f. 1906 10. Haraldur (Haroldur) f. 1909, d. 1955 11. Jónína (Joan) f. 1913, d. 1983.

Þorsteinn fór vestur árið 1878 með foreldrum sínum, Eyjólfi Kristjánssyni og Lukku Gísladóttur. Kristjana flutti vestur til N. Dakota eftir 1890. Þar í Akrabyggð hófu þau Þorsteinn búskap og bjuggu meðan Þorsteinn lifði. Kristjana flutti með barnahópinn til Lundar og var þar til ársins 1919. Þá tók hún lest með yngstu börnin vestur að Kyrrahafi og settist að í Oslandbyggð. Þar voru þá elstu synir hennar sestir að.