Þorsteinn Jónsson

ID: 8511
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Þorsteinn Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 6. júní, 1870.

Maki: 1) Guðrún Þórðardóttir f. 1870 í Eyjafjarðarsýslu, d. 3. ágúst, 1903 í Winnipeg. 2) Sigríður Sveinsdóttir f. 18. ágúst, 1868 í Eyjafjarðarsýslu, d. í Bellingham 12. febrúar, 1916 3) Sigurborg Þorláksdóttir f. 13. júní, 1898, d. 13. febrúar, 1965.

Börn: Með Guðrúnu 1. Þóra f. 1894, d í Winnipeg 1903 2. Jón f. 1895 3. Sigurlína f. 1897, d. í Winnipeg 1903 4. Lára f. 1900, d. í Winnipeg 1903 5. Fanney f. 1901. Með Sigurborgu 1. Ásgeir f. 17. mars, 1920 í Wynyard 2. Steingrímur f. 15. júlí, 1924 í Hnausa 3. Stefanía f. 13. júní,1927 í Hnausa 4. Lárus f. 22. maí, 1930 5. Violet f. 1932.

Þorsteinn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1902. Ári seinna missti hann konu sína og þrjú börn . Hann flutti til Saskatchewan og var með búskap á landi nærri Leslie í Vatnabyggð. Flutti þaðan í Hnausabyggð árið 1924 og settist að í Árnesi 1928.