Þorsteinn Jónsson

ID: 9469
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1943

Þorsteinn Jónsson Mynd Llg

Áslaug Jónsdóttir Mynd Llg

Þorsteinn Jónsson fæddist 18. apríl, 1866 í S.Þingeyjarsýslu. Dáinn í Wynyard í Saskatchewan 26. september árið 1943. Gauti vestra.

Maki: 14. nóvember, 1905 Áslaug Jónsdóttir f. 3. september, 1883 í S. Þingeyjarsýslu , d. 5. júlí, 1978.

Börn: 1. Kristjana f. 22. maí, 1906 2. Jórunn f. 4. október, 1908 3. Ester f. 28. mars, 1910 4. Jón f. 28. mars, 1912 5. Haraldur f. 28. mars,  1914 6. Kristbjörg Margrét f. 21. desember, 1915 7. Málmfríður Nanna f. 23. október, 1917 8. Kristrún Valgerður f. 2. maí, 1919 9. Edna f. 20. mars, 1922 10. Erla f. 28. apríl, 1925.

Þorsteinn fór vestur árið 1887 frá Gautlöndum í Skútustaðahreppi til Winnipeg í Manitoba með föður sínum og bræðrum. Það útskýsrir nafnið Þorsteinn Gauti. Þeir námu land í Lundarbyggð. Þorsteinn flutti þaðan á land suðaustur af Winnipeg þar sem hét Sandilands. Bjó þar um hríð en flutti árið 1906 í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þaðan lá leið hans og Áslaugar suður í Pembína þar sem þau keyptu lítið hús á jarðskika rétt við bæinn. Árið 1914 fluttu þau norður í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem Þorsteinn var með mjólkurbú um allmörg ár. Þau fluttu svo í Wynyardbæ um 1940.