Þorsteinn Jónsson

ID: 19758
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : Árnesbyggð
Dánarár : 1944

Þorsteinn Jónsson Mynd VÍÆ III

Þorsteinn Jónsson fæddist 9. nóvember, 1888 í Árnesbyggð í Nýja Íslandi. Dáinn 6. febrúar, 1944 í Winnipeg. Thorsteinn Stone vestra.

Maki: 28. desember, 1914 Margrét Jónsdóttir f. í Narrows 4. desember, 1892. Stone vestra. Dáin 24. ágúst, 1949.

Börn: 1. Timothy f. 5. febrúar, 1919 2. Clifford f. 22. nóvember, 1921 3. George f. 6. apríl, 1927 4. Margaret f. 31. ágúst, 1929 5. Dorothy f. 14. september, 1932, öll fædd í Winnipeg.

Þorsteinn var sonur Jóns Þorsteinssonar úr Mýrasýslu og konu hans, Solveigu Bjarnadóttur frá Gufuskálum, sem vestur fluttu árið 1886 og settust að í Mantoba. Margrét var dóttir Jóns Sigurðssonar og Pálínu Þórðardóttur sem vestur fluttu árið 1888, skrifaði sig ætíð Sigurðson fram að giftingu. Þau settust að í Narrows við norðanvert Manitobavatn og þar óx Margrét úr grasi.  Margrét gekk í kennaraskóla í Winnipeg og varð kennari þar í borg. Þar kynntist hún Þorsteini sem seinna var forstjóri vöruflutningadeildar T. Eaton verslunarfélagsins. Þar bjuggu þau alla tíð.