Þorsteinn Þorkelsson

ID: 19784
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Þorsteinn Þorkelsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1865.

Maki: 1) 1888 Helga Grímsdóttir f. árið 1862 í Skagafjarðarsýslu, d. í Winnipeg árið 1893. 2) 30. október, 1894 Guðbjörg Guðmundsdóttir úr Skagafjarðarsýslu.

Börn: Með Helgu 1. Grímur f. í Winnipeg 14. apríl, 1894, d. 1. júlí, 1941.Með Guðbjörgu 1. Njáll 2. Friðrik 3. Hekla.

Þorsteinn flutti vestur til Kanada árið 1890 með konu sína og soninn Grím. Þau fóru til Winnipeg.  Þorsteinn var lærður járnsmiður og vann eitthvað við það fyrstu árin í borginni en árið 1897 opnaði hann matvöruverslun og rak í fimm ár. Árið 1902 flutti fjölskyldan til Oak Point og nam Þorsteinn land þar í grenndinni. Þar opnaði hann matvöruverslun og hóf kvikfjárrækt.  Árið 1904 var járnbraut komin til Oak Point og flutti Þorsteinn þá verslunina þangað.