ID: 11979
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Þórunn Ásmundsdóttir fæddist árið 1861 f. í N. Múlasýslu.
Maki: Eiríkur Jóhannesson f. árið 1859 í N. Múlasýslu. Erik eða Alec Johnson vestra.
Börn: 1. Júlíus Ásmundur f. í Minnesota árið 1884.
Þau fluttu vestur til Minnesota árið 1880 ásamt móður Þórunnar, Ástríði Sveinsdóttur. Bjuggu í Lincoln sýslu árið 1885 en eru flutt til Minneota tíu árum seinna. Þaðan lá leið þeirra í Watertown í S. Dakota einhverjum árum eftir aldamót og eru þar skráð í manntali 1910. Eiríkur vann við trésmíðar en starfaði seinna hjá járnbrautarfélagi.
