Þorvaldur Kristjánsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1870. Dáinn í Manitoba árið 1934.
Maki: 1893 Guðlaug Björnsdóttir f. í N. Múlasýslu árið 1874, d. í Manitoba árið 1913.
Börn: 1. Guðrún (Rúna) f. 1894, d. 1960 2. Sigurborg (Borga) f. 1895, d. 1971 3. Þórunn (Tóta) f. 1897, d. 1966 4. Sigurbjörn (Barney) f. 1901, d. 1974 5. Kristjana (Stjana) f. 1903, d. 1977 6. Benedikt (Ben) f. 1908, d. 1958 7. Þorgerður (Gertie) f. 1910.
Þorvaldur og Guðlaug fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Samferða þeim voru Guðrún Benediktsdóttir, fóstra Þorvaldar og hennar sonur, Benedikt Kristjánsson. Þorvaldur nam land í Árnesbyggð og bjó þar til ársins 1906. Þá flutti hann norður að Manitobavatni og settist að í Narrows. Tveimur árum seinna fluttu þau á Asham Point við vatnið og bjuggu þar síðan.
