
Þorvaldur Þórarinsson og Sesselja Eyjólfsdóttir: Mynd IRS
Þorvaldur Þórarinsson fæddist í Hnappadalssýslu 4. desember, 1855. Dáinn í Nýja Íslandi 22. ágúst, 1929.
Maki: 1) 22. desember, 1885 Sesselja Eyjólfsdóttir f. 15. október í N. Múlasýslu, 1856, d. 1890 í Nýja Íslandi 2) 29. janúar, 1893 Helga Tómasdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu, 3. janúar, 1872, d. 16. júlí, 1964.
Börn: Með Sesselju 1. Eysteinn f. í Winnipeg 3. janúar, 1887 2. Steinunn f. við Íslendingafljót 7. desember, 1887, d. 18. desember, 1968 í Winnipeg 3. Barn fætt andvana. Með Helgu: 1. Sigtryggur (Tryggvi) f. 16. ágúst, 1894 2. Þórarinn 2. mars, 1896 3.Vilhelmína Sigurbjörg f. 8. mars, 1898 4. Albert Vilhjálmur f. 28. maí, 1899 5. Tómas Lárus (Wilbert) 21. júní, 1900 6. Kristín Soffía f. 14. júlí, 1901 7. Stefán Haraldur f. 1. febrúar, 1903 8. Jónas Helgi f. 5. mars, 1904 9. Tómas Þorvaldur f. 18. nóvember, 1905 10. Kristján f. 16. mars, 1907 11. Lárus f. 10. janúar, 1908.
Þorvaldur fór einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Fór til Nýja Íslands fljótlega en dvaldi þar stutt því hann fékk vinnu austur af Selkirk við járnbrautarlagningu. Þaðan lá leiðin norður í Mikley árið 1878 og 1881 var hann sestur að við Íslendingafljót. Bjó í Fljótsbyggð alla tíð.

Þorvaldur Þórarinsson og Helga Tómasdóttir Mynd IRS
