Þorvarður Einarsson

ID: 10685
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1938

Þorvarður Einarsson var fæddur árið 1852 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn 12. nóvember, 1938.

Maki: 1) Kristín Gísladóttir f. 1857, d. 1890 í Pembinabyggð, N.Dakota 2) Sigfríður Ingibjörg Halldórsdóttir f. 1. maí, 1855 í Dalasýslu, d. 26. október, 1929 í Mountain, N. Dakota..

Börn: Með Kristínu; 1. Jóhann f. í Pembina í N. Dakota 18. október, 1884 2. Þorbjörg. Þau misstu fjögur önnur. Með Sigfríði; 1. Valdís Brownie 2. Halldór Frímann 3. Einar Þorbergur.

Þorvarður og Kristín fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883. Þaðan lá leið þeirra í Pembinabyggð í N. Dakota þar sem Kristín lést. Sigfríður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1885. Þau hjón bjuggu lengstum í Pembinabyggð en enduðu í Mountain.