Þorvarður Stefánsson

ID: 13261
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1944

Þorvarður Stefánsson og Guðríður Jónsdóttir Mynd Brot

Þorvarður Stefánsson fæddist í N. Múlasýslu 29. desember, 1859. Dáinn í Nýja Íslandi 18. desember, 1944.

Maki: Guðríður Jónsdóttir f. 17. ágúst, 1854 í N. Múlasýslu, d. 5. október, 1911 í Fljótsbyggð.

Börn: 1. Stefán Helgi d. barn á Íslandi 2. Jón Kristján f. 7. september, 1890 í Nýja Íslandi, dó þar ársgamall 3. Stefán Helgi f. 7. apríl, 1894, d. 1974 4. Sigurlín Ágústa f. 1896.

Þorvarður og Guðríður voru samferða föður Þorvarðar, Stefáni Björnssyni og konu hans Sigurlaugu Jónsdóttur, vestur til Nýja Íslands árið 1886. Þau bjuggu í Fljótsbyggð alla tíð.