Þorviður Magnússon

ID: 9039
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1959

Samsæti á heimili Þorviðs og Jórunnar um 1920. Mynd RbQ

Þorviður Magnússon fæddist í S.Þingeyjarsýslu 7. maí, 1878. Dáinn árið 1959 á Höfn, dvalarheimili aldraðra í Vancouver. Viddi Halldorson vestra

Maki: 22. desember, 1901 Jórunn Jónsdóttir f. N. Múlasýslu árið 1881, d. í desember, 1926.

Börn: 1. Haraldur d. fárra ára 2. Elswood 3. Alfa (Alpha).

Þorviður fór vestur með foreldrum sínum árið 1881 og ólst upp í Hallsonbyggð í N. Dakota. Jórunn fór vestur árið 1887 með föður sínum og stjúpmóður, þeim Jóni Valdimar Jónssyni og Elísabetu Hallgrímsdóttur. Þorviður og Jórunn fluttu í Furudalsbyggð (Pine Valley) í Manitoba árið 1903 og voru þar á annað ár. Þá fluttu þau til Winnipeg en 1908 nam Þorviður land í Vatnabyggð í Saskatchewan og fluttu þau þangað árið 1909. Þau keyptu seinna lönd Elísabetar, stjúpu Jórunnar.