Tímóteus Böðvarsson

ID: 19058
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : Mýrasýsla

Tímóteus Böðvarsson Mynd VÍÆ1

Sesselja Jónsdóttir Mynd VÍÆ1

Tímóteus Böðvarsson fæddist í Mýrasýslu 2. ágúst, 1885.

Maki: 30. október, 1909 Sesselja Jónsdóttir f. í Geysisbyggð 27. september, 1889.

Börn: 1. Böðvar Jón Skúli f. 18. júlí, 1911 2. Guðrún f. 21. janúar, 1914 3. Sigfús Halldór f. 28.febrúar, 1917 4. Hulda Ragnhildur f. 14. nóvember, 1919 5. Sesselja Margrét f. 27. október, 1926.

Tímóteus flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905 og vann ýmiss störf áður en hann nam land í Geysisbyggð. Hann nefndi það Hulduhvamm og þar bjuggu þau í 33 ár. Hann var póstafgreiðslumaður í Geysir P.O. árin 1912-1945.