
Tómas Hermann Jónsson
Tómas Hermann Jónsson fæddist í Héðinshöfða í S. Þingeyjarsýslu 12. febrúar, 1870. Dáinn í Winnipeg 20. maí, 1927. Thomas H Johnson vestra.
Maki: Aurora Frederickson f. 4. september, 1877 á Gimli, d. 22. júní, 1954.
Börn: 1. Margaret Ethel f. 12. apríl, 1899. 2. Elswood Brandur f. 26. júní, 1901 3. Cecil Frederick f. 14. ágúst, 1904.
Tómas fór vestur til Winnipeg árið 1879 með foreldrum sínum, Jóni Björnssyni og Margréti Sigríði Bjarnadóttur og systkinum. Þau bjuggu fyrst í Nýja Íslandi en fluttu til Winniprg árið 1881. Tómas gekk menntaveginn, fékk kennararéttindi og varð lögfræðingur. Tók þátt í stjórnmálum í Manitoba, kjörinn á fylkisþing árið 1907 og sat á þingi í 15 ár. Aurora var dóttir Friðjóns Friðrikssonar frá Melrakkasléttu og konu hans Guðnýju Sigurðardóttur.
