
Standandi: Ingibjörg, Rannveig, Helga og Jónas. Guðrún og Tómas sitja, hann heldur á Tómasi. Mynd Safn NG
Tómas Ágúst Jónasson fæddist 8. ágúst, 1845 á Engimýri í Öxnadal í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Fljótsbyggð 1.september, 1929.
Maki: 14. október, 1871 Guðrún Jóhannesdóttir f. 1. september, 1852 í Eyjafjarðarsýslu, d. 8.janúar, 1931.
Börn: 1.Helga f. 3. janúar, 1872 2. Sigtryggur f. 19. desember, 1873, d.20. ágúst, 1874 3. Jóhanna f. 29. ágúst, 1875, d. 2. janúar, 1876 4. Sigtryggur f. 23. október, 1877, d. 11. september, 1878 5. Jónas f. 17. apríl, 1879 6. Ingibjörg f. 23. júlí, 1881 7. Rannveig f. 29. júlí, 1883 8. Tómas f. 29. nóvember, 1887 9. Sigurbjörg f. 9.september, 1890 10. Jóhannes f. 2. október, 1892 11. Sigurbjörn Óskar f. 11. mars, 1896. Þau misstu stúlku á leiðinni yfir Atlantshafið árið 1876.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og fóru þaðan strax til Nýja Íslands. Bjuggu í Engimýri í Fljótsbyggð alla tíð.

Engimýri í Fljótsbyggð var byggt um 1877. Þar gistu fjölmargir landnemar nýkomnir til Nýja Íslands Mynd HILW
