Trausti Andrésson

ID: 11389
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1934

Trausti Andrésson fæddist í Reykjavík árið 1888. Dáinn í Manitoba 6. júní, 1934. Davidson vestra.

Maki: 16. júlí, 1914 Guðrún Jóna Þorláksdóttir f. í Dalasýslu 22. júlí, 1887.

Börn: 1. Friðsteinn 2. Víglundur 3. Laufey Júlíana 4. Einar Filipp 5. Marínó Sigurður 6. Guðrún Fjóla.

Trausti flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1904, með foreldrum sínum, Andrési Davíðssyni og Steinunni Jónsdóttur. Guðrún Þorláksdóttir fór vestur með móður sinni, Margréti Guðmundsdóttur árið 1913.