Tryggvi Kristjánsson

ID: 10647
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1922

Tryggvi Kristjánsson fæddist árið 1856 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í N. Dakota árið 1922.

Maki: Aðalbjörg Bjarnadóttir f. í N. Múlasýslu 1. júlí, 1854, d. 20. janúar, 1924 í Garðarbyggð.

Börn: 1. Rósa f. 1880 2. Kristján f. 1886, d. 1905 í N. Dakota. Tveir synir þeirra dóu á Íslandi.

Þau fluttu vestur til N. Dakota árið 1889 og voru foreldrar Tryggva, Kristján Jónsson og Guðrún Jónsdóttir þeim samferða. Tryggvi og Aðalbjörg bjuggu fyrst í Cashel, fluttu þaðan til Grafton og loks í Garðarbyggð. Stunduðu lengi búskap en fluttu seinna í þorpið Garðar.