ID: 10591
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla

Tryggvi Ólafsson og Berglaug Guðmundsdóttir
Tryggvi Ólafsson: Fæddur í Þistilfirði í N. Þingeyjarsýslu árið 1858.
Maki: Berglaug Guðmundsdóttir f. á Flögu í Þistilfirði í N. Þingeyjarsýslu 1854
Börn: 1. Ólína f. 1883, d. 16. mars,1937 2. Abigael 3. Soffía 4. Gunnar Jóhann öll fædd vestra.
Þau fóru vestur árið 1882 og settust að í Grafton, N. Dakota. Flutti til Kanada 1892 og nam land í Hólabyggð þar sem faðir hans var kominn. Hann bjó á landi sínu til ársins 1909 en færði sig þá um set og fór á annað land í sömu byggð.
