Tryggvi Pálsson

ID: 9327
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Tryggvi Pálsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1863.

Maki: 3. júní, 1889 í Mountain, ND: Ósk Hallgrímsdóttir f. 8. nóvember, 1860 í Skagafjarðarsýslu, d.21. júlí, 1934 í Hallson.

Börn: 1. Jóhann Ingimar f. 19. ágúst, 1889 2. Egill Óli f. 14. september, 1892, d. fárra vikna 3. Pálína Hólmfríður f. 19. janúar, 1892, d. 6.maí, 1901 4. Ólína Herdís f. 10. nóvember, 1894 5. Ágúst Rósant f. 6. október, 1896 6. Alfreð Eiríkur f. 3. júlí, 1900 7. Pálína Hólmfríður Anna f. 18. apríl, 1902 8. Hallgrímur Guðberg f. 27. apríl, 1904, d. 13. maí, 1913. Ósk átti son fyrir hjónaband; Ingimundur Björnsson f. 1887 á Íslandi.

Tryggvi flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með bróður sínum, Valdimar árið 1878. Hann settist að í Pembinasýslu í N. Dakota og gekk þar í hjónaband. Bjó í N. Dakota alla tíð. Ósk fór vestur þangað með son sinn árið 1888 en þar bjuggu þá foreldrar hennar, Hallgrímur Hallgrímsson og Guðbjörg Jónsdóttir.