Valdimar E Mýrdal

ID: 17943
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1891

Valdimar Einarsson fæddist í Garðar í N.-Dakota, 16. apríl, 1891. Mýrdal vestra.

Maki: Sigríður Jónatansdóttir f. í Akrabyggð í N.-Dakota 1895.

Barnlaus.

Valdimar var sonur Einars Einarssonar úr Mýrdal og Önnu Sveinsdóttur frá Fáskrúðsfirði. Þau fóru bæði til Vesturheims árið 1878, Einar einsamall en Anna með foreldrum sínum, Sveini Árnasyni og Ingibjargar Björnsdóttur. Valdimar gekk menntaveginn, lauk námi í Union Commercial College í Grand Forks og vann svo á skattstofunni í Fargo. Þar bjuggu Valdimar og Sigríður alla tíð.