
Valdimar og fjölskylda í Blaine. Mynd Well Connected
Valdimar Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 12. febrúar, 1870. Waldemar eða Valdemar Johnson vestra.
Maki: Ingibjörg Valdimarsdóttir f. 1874 í N. Múlasýslu.
Börn: 1. Valdimar f. 1889, d. sama ár 2. Guðrún Rose f. 29. júní, 1890 3. Valdimar Jónas f. 26. janúar, 1893 4. Valdina f. 1895 5. Gustav f. 1896 6. Lawrence f. 1898 7. Leo f. 1900 8. Steinunn f. 1903
9. Stephania f. 1905.
Valdimar flutti vestur um haf árið 1878 með móður sinni, Guðrúnu Halldórsdóttur. Þau settust að í N. Dakota. Ingibjörg flutti þangað með son sinn, Aðalstein árið 1887. Valdimar hóf þar búskap en árið 1900 er fjölskyldan skráð í Pohlitz hreppi í Roseau sýslu í Minnesota. Seinna flutti svo fjölskyldan vestur að Kyrrahafi því í manntali í Washington 1920 er hún skráð í Blaine.
