Jónína Valgerður Björnsdóttir fæddist árið 1863 í N. Þingeyjarsýslu.
Maki: Jóhann Tryggvi Friðriksson f. 1856 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Sigrún 2. Karl 3. Björg 4. Ethel 5. Björn 6. Oddný Guðfinna 7. Kristján
Valgerður fór vestur árið 1876 með foreldrum sínum, Birni Jónssyni og Þorbjörgu Björnsdóttur. Þau fóru til Winnipeg. Jóhann fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 með föður sínum og yngri bróður. Þeir bjuggu fyrst í Ontario, fluttu þaðan til Lockport í Nova Scotia en þaðan lá svo leiðin til Winnipeg í Manitoba. Jóhann nam land í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1882 en flutti þaðan og nam land í Argylebyggð árið 1884 og bjó þar til ársins 1906. Þá fluttu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem hann nam land og keypti annað í Kandahar/Dafoe byggð. Bjó þar í ellefu ár en þá seldi hann og fluttu þau hjón í Wynyard.
