ID: 10760
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1928

Valgerður Guðmundsdóttir Mynd Almanak 1930
Valgerður Guðmundsdóttir fæddist árið 1860 að Skálum á Langanesi í N.-Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba 20. apríl, 1928.
Maki: Ólafur Jóhannesson f. 1858 í Blönduhlíð í Dalasýslu, d. í Manitoba 18. október, 1934.
Ólafur fór vestur til Winnipeg árið 1882 en Valgerður fór vestur ári síðar. Þau giftust árið 1887.
Börn: Eignuðust 6 börn í Vesturheimi og dóu 3 þeirra mjög ung. Upp komust 1: Jóhannes Kjartan d. 1910 2. Svanhildur d. 1934 3. Vilhjálmur.
Ólafur flutti til Norður Dakota árið 1883 og bjó um skeið í Grafton. Þau hjón fluttu norður til Winnipegosis árið 1899.
