
50 ára brúðkaupsmynd. Frá vinstri Þórey, Sveinn, Siggi, Valla og Ingvar. Mynd A Century Unfolds
Valgerður Pállaug Eyjólfsdóttir fæddist 16. apríl, 1898 á Eyjólfsstöðum í Nýja Íslandi. Dáin í Manitoba 27. janúar, 1986. Valla Guðmundson vestra.
Maki: 1918 Sigurbjartur Stefánsson fæddist í Garðar í N. Dakota 22. mars, 1898, d. 31. desember, 1986. Siggi Guðmundson vestra.
Börn: 1. Ingvar f. 14. mars, 1918 2. Sveinn (Sveini vestra) f. 10. maí, 1920 3. Þórey (Thorey) Guðrún f. 7, desember, 1928.
Valgerður (Valla) ólst upp í Geysisbyggð og gekk þar í skóla. Ung fór hún að heiman með systur sinni, Dóru, til að vinna fyrir sér. Þegar hún giftist Sigga hófu þau búskap á heimili foreldra hans. Þar var rekið gistiheimili um árabil og eftir lát foreldra Sigurbjarts ráku þau það áfram. Valgerður unni íslenskum uppruna sínum og tók mikinn þátt í samfélagsmálum. Sigurbjartur var 3 ára gamall þegar foreldrar hans, Pétur Stefán Guðmundsson og Guðrún Jóhanna Benjamínsdóttir fluttu norður í Árdalsbyggð í Nýja Íslandi. Hann gekk í skóla í Árborg og byrjaði ungur að vinna fyrir sér. Fyrst við skógarhögg en seinna við flutninga á frosnum fiski af ísilögðu Winnipegvatni á markað í Nýja Íslandi.
