
Valgerður Þorláksdóttir Mynd VÍÆ III

Sigurjón Sveinsson Mynd VÍÆ III
Valgerður Sylvía Þorláksdóttir fæddist 1863 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 1909 í Vatnabyggð í Saskatchewan.
Maki: 1881 Sigurjón Sveinsson f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1854.
Börn: 1. Henrietta f. 1884 2. Páll f. 1886 3. Lilja f. 1889 4. Clara f. 1892 5. Soffía f. 1894 6. Lovísa f. 1897 7. Aldís f. 1900.
Sigurjón fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Dvaldi á ýmsum stöðum þar um slóðir og í Michigan. Flutti í Ljósavatnssýslu (Shawano) haustið 1877 og tók þátt í nýlendustofnun í N. Dakota sumarið 1878. Nam land í Garðarbyggð og bjó þar til ársins 1905 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann nam land vestur af Wynyard og bjó þar til ársins 1910 en flutti þá í Wynyard þorpið með ógift börn sín. Þar rak hann kjötverslun til ársins 1918 en seldi og dvaldi eftir það hjá börnum sínum í þorpinu. Valgerður fór líka vestur árið 1873 með foreldrum sínum og systkinum. Þau voru fyrst í Milwaukee, fluttu svo í Ljósavatnssýslu og um 1880 í Garðarbyggð í N. Dakota.
