Vigdís Dósóþeusdóttir

ID: 4997
Fæðingarár : 1881

Vigdís Verónika Dósóþeusdóttir fæddist 10. ágúst, 1881 í Ísafjarðarsýslu.

Maki: Sveinn Sveinsson f. árið 1879 í Húnavatnssýslu, d. á Point Roberts 1915

Barnlaus.

Sveinn flutti vestur árið 1910 en Vigdís ári síðar. Þau fóru á Point Roberts tangann þar sem Sveinn keypti 10 ekrur af Jónasi bróður sínum. Hann var ekk heill heilsu og sneri Vigdís heim til Íslands að honum látnum.