ID: 2968
Fæðingarár : 1838
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1916

Vigfús Einarsson og Guðrún Guðmundsdóttir Mynd FVTV
Vigfús Einarsson fæddist 17. júlí, 1838 í V. Skaftafellssýslu. Dáinn 9. október, 1916. Vossie Einarson í Utah.
Maki: 7. október, 1864 Guðrún Guðmundsdóttir f. 15. ágúst, 1834 í Rangárvallasýslu. Dáin 12. október, 1912.
Börn: 1. Sesselja f. 23. nóvember, 1866, d. 12. október, 1957. 2. Einar f. 1. ágúst, 1872, d. 21. nóvember, 1933 3. Árni f. 11. júlí, 1875, d. 14. júní, 1925. Sonurinn Guðlaugur f. 18. ágúst, 1864 varð eftir í Vestmannaeyjum.
Vigfús fór einn vestur til Spanish Fork í Utah árið 1888 en sonur hans Árni fór ári áður. Guðrún fór þangað 1889, Sesselja 1891 og Einar 1892.
