ID: 9312
Fæðingarár : 1837
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1917
Vigfús Hallsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1837. Dáinn í N. Dakota árið 1917.
Maki: Elín Guðlaugsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1835, d. 1915.
Börn: 1. Rósa f.1865 2. Ólöf f. 1867 3. Arnfríður f. 1871 4. Helgi f. 1873 5. Jóhann f. 1875.
Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og þaðan suður í N. Dakota. Vigfús valdi sér land alllangt frá íslensku byggðinni umhverfis Mountain. Land hans var tæpum 30 km austur af Mountain, nærri þar sem þorpið Glasston er í dag. Seinna keypti hann land í Akrabyggð en endaði svo í Mountain.
