Vilborg Jónatansdóttir

ID: 13013
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1926

Fjórar vinkonur í Minneota: Aftari röð: Martha Snorradóttir, Jennie Johnson og Jóhanna Snorradóttir. Fyrir framan situr Anna Anderson Mynd Well Connected

Vilborg Jónatansdóttir fæddist í N. Múlasýslu 7. janúar, 1845. Dáin í Minneota í Minnesota 12. janúar, 1926.

Maki: 18. maí, 1879 Snorri Högnason f. 13. maí, 1846 í Breiðdal í S. Múlasýslu, d. 12. desember, 1927 í Minneota.

Börn: 1. William f. 1880, d. 9. febrúar, 1903 2. Jóhanna Þórunn f. 21. desember, 1881 d. 30. september, 1926 3. Christine Lillie f. 9. júní, 1883  4. Martha Lizzette f. 30. september, 1884 5. Frank Guy Byron f. 18. nóvember, 1886

Vilborg fór vestur með bróður sínum, Jóni Jónatanssyni árið 1873. Þau voru í fyrst í Wisconsin en fluttu síðan í Lyon sýslu í Minnesota. Snorri fór vestur árið 1873 og vann í Wisconsin hjá bónda í nokkur ár. Árið 1876 flutti hann vestur og nam land í Lyon sýslu í Minnesota. Flutti af landi sínu til Minneota árið 1890.