Vilfríður Haraldsdóttir

ID: 8590
Fæðingarár : 1894

Vilfríður Haraldsdóttir Hólm Mynd VÍÆ I

 Vilfríður Haraldsdóttir Hólm fæddist 3. desember, 1894 í Eyjafjarðarsýslu.

Maki: 21. febrúar, 1919 Unnsteinn Vilberg Sigurðsson f. í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi 21. september, 1892. Sonur Sigurðar Eyjólfssonar. Skráður Eyjólfsson vestra.

Börn: 1. Edward Ragnar f. 27. janúar, 1920 2. Sesselja Grace f. 24. mars, 1925 3. Kathleen Helga Rósa f. 13. apríl, 1929.

Foreldrar Vilfríðar voru Haraldur Sigurðsson Hólm og Helga Gunnlaugsdóttir. Þau fluttu vestur árið 1907. Vilfríður lauk kennaraprófi í Brandon og kenndi í Víðirbyggð og víðar. Unnsteinn keypti landið í Víðir- Sandhæðabyggð af Hudson Bay Company. Hann vann við landmælingar í Manitoba og Saskatchewan í 12 ár, var 16 ár í sveitastjórn í Bifröst og stundaði dýralækningar í Arborg.