Vilhelmína Friðfinnsdóttir

ID: 10951
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1938

Guðrún Vilhelmína Friðfinnsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 4. nóvember, 1856. Dáin í Langdon í N. Dakota 16. maí 1938. Johnson vestra.

Maki: 10. febrúar, 1891 John Peter Johnson, norskrar ættar f. 12. desember, 1858, d. 15. janúar, 1943.

Börn: 1. Playmert f. 2. maí, 1891 2. Fred f. 16. janúar, 1893 3. Joseph f. 24. júní, 1895.

Guðrún Vilhelmína flutti vestur til Kanada árið 1883 og var einhvern tíma í Winnipeg áður en hún flutti suður til N. Dakota. Bjó alla tíð í Langdon.