Vilhjálmur Ásbjarnarson

ID: 10722
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla

Vilhjálmur Ásbjörnsson Mynd FATV

Vilhjálmur Ásbjörnsson (svo í heimildum vestra) fæddist í N. Þingeyjarsýslu 16. nóvember, 1854.

Maki: 1878 Sigfríður Tómasdóttir f. 1849, d. 25. mars, 1907.

Börn: 1. Kristín f. 1879 2. Sigríður 3. Helga 4. Ásbjörn.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Þau fóru sama ár til Mikleyjar þar sem Helgi, föðurbróðir Vilhjálms var búsettur. Ásbjörn nam land og flutti á það árið 1888 og bjó þar alla tíð. Bróðir Vilhjálms, Tómas var þeim samferða vestur.