Vilhjálmur Grímsson

ID: 2840
Fæðingarár : 1893
Fæðingarstaður : V. Skaftafellssýsla
Dánarár : 1990

Vilhjálmur Grímsson Mynd FVTV

Nellie Mary Rose Mynd MoO

Vilhjálmur Grímsson fæddist 27. apríl, 1893 í V. Skaftafellssýslu. Dáinn 1990 í Bresku Kolumbíu.

Maki: Nelli Mary Rose f. 1892, d. 1963.

Börn: 1. Jón f. 8. nóvember, 1920 2. Ian f. 7. mars, 1925

Vilhjálmur fór vestur til Gimli í Manitoba í  Kanada árið 1912. Dvaldi lengstum í Bresku Kolumbíu og stundaði fiskveiðar m.a. á Smith Island. Bjó í Ósland nýlendunni.