Vilhjálmur Sigurgeirsson

ID: 8635
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1923

Vilhjálmur Sigurgeirsson Mynd FVtA

Kristín Þóra Helgadóttir Mynd FAtV

Vilhjálmur Kristján Sigurgeirsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 15. október, 1863. Dáinn 31. október, 1923 í Manitoba.

Maki: 1893 Kristín Þóra Helgadóttir f. 1873 í N. Þingeyjarsýslu, d. 2. febrúar, 1907 í Manitoba.

Börn: 1. Sigurgeir Rósberg f. 8. október, 1892, d. 21. nóvember, 1952 2. Helgi f. 28. mars, 1895 3. Ingibjörg Margrét f. 1. febrúar, 1896 4. Þórunn Lára f. 28. maí, 1901 5. Theodór f. 12. júní, 1903 6. Gústaf Axel Williams f. 18. apríl, 1905 7. Kristinn Karl f. 21. janúar, 1907, d. 25. maí, 1962.

Vilhjálmur fór vestur til Nýja Íslands með móður sinni og systkinum árið 1888. Hann var fyrst á Gimli en settist svo að í Mikley þar sem kallað var Mylnuvík. Kristín fór vestur með foreldrum sínum, Helga Tómassyni og Margréti Þórarinsdóttur árið 1876. Þau settust að í Nýja Íslandi.