Vilhjálmur Þ Bjarnar

ID: 20354
Fæðingarár : 1920

Vilhjálmur Þ Bjarnar Mynd VÍÆ I

Vilhjálmur Þorláksson Bjarnar fæddist í Reykjavík 21. mars, 1920.

Maki: 19. maí, 1946 Halldóra Guðrún Erickson f. 10. nóvember, 1920 í Winnipeg.

Börn: 1. Erik Thor f. 26. janúar, 1958.

Vilhjálmur ólst upp í Reykjavík, varð stúdent frá MR árið 1942 og sundaði nám í norrænudeild HÍ 1943-47. Á árunum 1944-45 vann hann við útgáfu Flateyjarbókar. Flutti til Minnesota árið 1947 og lauk BA prófi 1956 og MA ári síðar. Var þá ráðinn bókavörður við bókasafn Minnesotaháskóla árin 1957-60. Flutti þá til New York og var ráðinn bókavörður við íslenska Fiskesafnið í Cornell háskóla í Ithaca.