ID: 20257
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1912

Violet Bristow Einarson Mynd Dagur, Akureyri, 1993
Violet Dorothy Lucille Bristow fæddist á Gimli 20. júlí, 1912. Dáin á Gimli 20. janúar, 1993.
Maki: 28. mars, 1930 Einar Ingiberg Sigfússon f. á Sandy Bar í Fljótsbyggð 9. janúar, 1898.
Börn: 1. Donna Mae f. 17. október, 1935.
Violet var dóttir William Herbert Bristow og Guðrúnar Friðrikku Gottskálksdóttur á Gimli. Einar var sonur Sigfúsar Einarssonar og Guðrúnar Þorláksdóttur landnema í Nýja Íslandi. Einar stundaði framhaldsnám í Success Business College í Winnipeg og gerðist útgerðarmaður á Winnipegvatni. Árið 1950 stofnaði hann með konu sinni fasteignasölu á Gimli og ráku þar leigu- og tryggingaþjónustu. Meir um Violet í Íslensk arfleifð.