ID: 1118
Fæðingarár : 1883
Fæðingarstaður : Árnessýsla

Bjarni Eyjólfsson og Guðný Jónsdóttir Mynd Laugardalsætt
Bjarni Eyjólfsson fæddist 23. október, 1883 í Árnessýslu. Dáinn 27. maí, 1947 í Ninette í Manitoba.
Maki: 17. apríl, 1917 Guðný Jónsdóttir f. 29. júní, 1887 í N. Múlasýslu, d. árið 1977.
Börn: 1. Thelma Olive f. 29. janúar, 1918 2. Raymond f. 23. maí, 1919 3. Hilmar Clifford f. 8. mars, 1921 4. Mary Lucas f. 9. september, 1930.
Bjarni fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1910 en Guðný tveimur árum seinna. Þau fluttu í Big Point byggð, keyptu land, hreinsuðu og hófu búskap.