
Barnahópurinn; Oscar Victor, Bjarni Thordur, Dorothy Valentine, Anna Stephania, Jens Sigurður, Kristján Halldór og María Þuríður. Mynd VÍÆ V
Bjarni Valtýr Jonson fæddist í Akra, N.D. 28. júlí, 1891. Dáinn 5. janúar, 1958.
Maki: 1913 Málfríður Kristjánsdóttir f. 10. september, 1892, d. 23. maí, 1982.
Börn: 1. María Þuríður f. 26. september, 1913 2. Kristján Halldór f. 28. janúar, 1915 3. Jens Sigurður f. 28. júlí, 1918 4. Anna Stephania f. 14. janúar, 1922 5. Dorothy Valentine f. 14. febrúar, 1924 6. Bjarni Þórður f. 1930 7. Oscar Victor f .16. mars, 1933.
Bjarni Valtýr var sonur Guðmundar Jónssonar og Sigríðar Bjarnadóttur í Mountain, N.D. Ungur tók hann að sér póstburð í byggðinni en árið 1913 námu hann, faðir hans og Oscar Victor land við Climax í N.D. Hann og Oscar Victor unnu mikið fyrir nýkomna landnema frá Íslandi, plægðu lönd þeirra og þresktu korn. Árið 1919 hætti hann búskap, flutti til Mountain og opnaði bílaverkstæði. Hann flutti árið 1926 til Walhalla og vann þar hjá Porter Supply Co. Árið 1934 var hann aftur með búskap, í þetta sinn nærri Langdon. Þar kom hann sér upp hjörð af Aberdeen Angus nautgripum og var einnig með Karakul fé. Það var svo árið 1945 að þau hjónin fluttu til Sacramento í Kaliforníu en þar bjuggu þá dæturnar María Þuríður, Anna Stephania og Dorothy Valentina. Þar enduðu þau sitt lífshlaup.
