ID: 17129
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1908

Clara Guðlaug Ólafsson Mynd VÍÆ I
Clara Guðlaug fæddist í Manitoba 10. október, 1908. Tók föðurnafn stjúpföður síns.
Ógift og barnlaus.
Stjúpfaðir Clöru var Kristján Sveinsson en móðir hennar var Ólína Friðrika Tryggvadóttir, landnámsmanns Ólafssonar í Manitoba. Hún gekk í grunnskóla í Glenboro, flutti 1943 til Winnipeg þar sem hún bjó eftir það.
